Skólareglur
SKÓLAREGLUR Í GRÍMSEYJARSKÓLA
Ákveðið hefur verið að notast við hegðunareinkunn í eldri deild og er það ústkýrt í reglunum og einnig í síðasta hluta þeirra, Hvað gerist ef ég brýt skólareglur?
KURTEISI
Já
- Við hjálpumst að.
- Við pössum að enginn sé útundan.
- Við skiptumst á að nota leikföng og leiktæki þegar við á.
- Við látum vita ef skólasystkini á í erfiðleikum með að fylgja skólareglum.
Nei
- Við truflum ekki aðra nemendur við vinnu sína.
- Við metumst ekki eða gerum lítið úr öðrum.
- Við einokum ekki leikföng og leiktæki.
- Við skiljum ekki aðra útundan, stríðum, meiðum eða ofbjóðum öðrum á annan hátt (t.d. með ljótum munnsöfnuði eða framkomu).
Hvað gerist ef ég brýt kurteisisreglurnar?
- Verði nemandi uppvís að því að brjóta kurteisisreglur metur kennari alvarleika brotsins.
- Valdi nemandi truflun í kennslustund áminnir kennari nemandann (biður hann vinsamlega um að láta af hegðuninni). Dugi það ekki til skráir kennari tilfellið hjá sér og lækkar hegðunareinkunn nemanda um 0,2.
- Þegar nemandi sýnir kennara og/eða samnemendum sínum dónaskap er kennara heimilt að lækka hegðunareinkunn nemanda um 0,2 án sérstakra viðvarana eða áminningar.
- Valdi nemandi verulegri truflun í kennslustund og áminning kennara dugir ekki til er heimilt að vísa nemandanum úr kennslustund. Komi til þess hefur skólastjóri samband við forráðamenn. Slíkt tilfelli kemur til lækkunar á hegðunareinkunn um sem nemur 1,0.
- Gerist nemandi sekur um líkamsárás á samnemanda eða starfsmann skólans er haft samband við forráðamenn bæði þolanda og geranda. Slíkt tilfelli kemur til lækkunar á hegðunareinkunn um sem nemur 1,0.
- Valdi nemendur tjóni á eigum skólans, starfsfólks, annarra nemenda skóla eða annarra aðila sem eiga verðmæti í og við skólann, eru þeir ábyrgir fyrir því tjóni.
UMGENGNI
Já
- Við göngum hljóðlega um, sérstaklega þegar kennsla er í gangi.
- Við göngum frá skóm og hengjum upp föt þegar komið er inn í skólann.
- Við förum vel með þau verkfæri sem við fáum lánuð og skilum þeim að skóladegi loknum.
Nei
- Við hlaupum ekki og öskrum í skólanum.
- Við skiljum ekki eftir skó á miðju gólfi eða hendum útifötum á gólfið.
- Við förum ekki illa með tæki og verkfæri skólans.
Hvað gerist ef ég brýt umgengnisreglurnar?
- Gangi nemendur illa um skólann áminnir kennari þá. Dugi það ekki til skráir kennari tilfellin hjá sér og eftir þrjú skipti er kennara heimilt að lækka hegðunareikunn nemanda um 0,2.
STUNDVÍSI OG VINNUSEMI
Já
- Við mætum stundvíslega. Ef við mætum seint biðjumst við afsökunar á því og komum okkur hljóðlega að verki.
- Við erum vinnusöm í kennslustundum.
- Við skilum heimanámi á réttum tíma.
- Við fáum leyfi ef við þurfum að fara út af skólalóðinni á skólatíma.
Nei
- Við mætum ekki seint og gætum þess að ef það kemur fyrir þá gætum við þess að valda ekki truflun í kennslustund.
- Við sitjum ekki aðgerðarlaus í kennslustundum.
- Við skilum ekki heimanáminu seint og illa.
- Við förum ekki út af skólalóðinni á skólatíma án leyfis.
Hvað gerist ef ég brýt reglur er varða stundvísi og vinnusemi?.
- Komi nemandi seint í kennslustund kemur það til frádráttar hegðunareinkunn um sem nemur 0,2.
- Skili nemandi ekki heimanámi á réttum tíma án gildrar ástæðu kemur það til frádráttar hegðunareinkunn um sem nemur 0,2.
- Sé nemandi fjarverandi í kennslustund án fullnægjandi skýringa nemur frádrátturinn 0,5.
- Athugið að allar fjarvistir eru skráðar í Mentor.
TÖLVUR OG TÆKI
Já
- Við göngum vel um tölvur og önnur tæki skólans.
Nei
- Við förum ekki illa með tölvur og önnur tæki skólans.
- Við neytum ekki matar eða drykkja við tölvur.
Hvað gerist ef ég brýt reglur er varða tölvur og tæki?
- Verði nemandi uppvís að því að fara viljandi illa með eða ganga illa um tæki í eigu skólans er kennara heimilt að lækka hegðunareinkunn nemanda um 0,2-0,5 eftir alvarleika atviks.
NESTI
Í Grímseyjarskóla eru tveir umsjónarmenn í hverri viku. Þeir eiga að sjá til þess að gengið sé vel um nestisaðstöðu nemenda (eldhús og borðkrók) og ganga frá að hádegisverði loknum (þrífa borð, setja í uppþvottavél, stóla upp á fimmtudögum og sópa gólf þar sem borðað er). Hver nemandi sér um að ganga frá sínu nesti og skola það leirtau sem hann notar.
Já
- Hollt og gott nesti.
- Við göngum frá eftir okkur að nestistíma loknum og skolum leirtau sem við notum.
Nei
- Gos og nammi
- Sykraðir drykkir (djús) og matur (t.d. engjaþykkni) – nema á föstudögum.
- Við skiljum ekki eftir hálfborðað nesti og leirtau að nestistíma loknum.
Hvað gerist ef ég brýt reglur er varða nesti?
- Séu vandamál varðandi nesti nemenda hafa kennarar samband við forráðamenn og leitast við að leysa málin í bróðerni.
- Sinni nemendur ekki umsjónaramannastarfi sínu af samviskusemi áminnir kennari nemanda. Dugi það ekki til er kennara heimilt að lækka hegðunareikunn nemanda um 0,2.
FARIÐ AÐ LÖGUM
HVAÐ GERIST EF ÉG BRÝT SKÓLAREGLUR?
Ósæmileg hegðun (Ó) 0,2 í frádrátt
Seint (S) 0,2 í frádrátt
Vísað úr tíma (R) 1,0 í frádrátt
Athugið að með fjarvist er átt við þegar nemandi er fjarverandi án skýringa. Nemandi fær upplýsingar um hegðunareinkunn sína að minnsta kosti tvisvar í mánuði. Kennari skráir hjá sér þau tilfelli sem koma til frádráttar svo nemandi getur ávallt fengið rökstuðning frá kennara á því hvers vegna
- Kennari skráir ávallt hjá sér það sem verður til þess að hegðunareinkunn nemanda lækkar svo forráðamenn og nemendur sjálfir geti séð ástæður þess að gripið hefur verið til lækkunar hegðunareinkunnar og til að gæta þess að kennari nýti þetta úrræði ekki að eigin geðþótta.
- Fari hegðunareinkunn niður fyrir 7,5 ræðir skólastjóri við nemanda og lætur forráðamenn hans vita.
- Fari hegðunareinkunn niður fyrir 6,0 eru foreldrar boðaðir á fund með skólastjóra og kennara og mál nemandans rædd.
- Fari hegðunareinkunn niður fyrir 3,0 er leitað til skóladeildar Akureyrarbæjar sem síðan veitir ráðleggur varðandi viðeigandi úrvinnslu máls.
- Einu sinni á önn getur nemandi sótt um að hegðunareinkunn hans verði hækkuð. Hann gerir þá samning við starfsfólk skólans um að hann hyggist bæta hag sinn og á nemandi kost á að hækka um 0,5 fyrir hverja viku sem vel gengur.